Karlmaður sem er grunaður um að hafa drepið einn og sært fimm í skotárás í úthverfi Parísar á föstudag hefur verið lagður inn á geðdeild. Hann er sagður þjást af geðklofa að sögn heimildarmanns sem tengist rannsókninni, samkvæmt AFP fréttaveitunni. Maðurinn skaut handahófskennt þegar hann keyrði í gegnum bæina Trappes og La Verriere, úthverfi Parísar.Maðurinn var handtekinn á föstudag, skömmu eftir árásina, en í fórum hans fundust hríðskotabyssa og táragassprengjur.Fleiri hundruð manns komu saman í Trapp á laugardag til að minnast hins látna sem var 26 ára karlmaður, sem er franskur ríkisborgari ættaður frá Kongó. Meðal þeirra sem slösuðust er 12 ára stúlka sem árásarmaðurinn skaut átta sinnum og hún er enn í lífshættu.Emmanuel Macron forseti Frakklands segir árásina rasíska hryðjuverkaárá