Mikil fagnaðarlæti voru vítt og breitt um Serbíu í gær og nótt eftir að fjöldahreyfing stúdenta vann stórsigur í þingkosningum sem fram fóru í landinu í gær.Talningu atkvæða er ekki lokið en bráðabirgðatölur benda til þess að fjöldahreyfing stúdenta fái 138 þingsæti og geti því myndað meirihluta. 250 þingsæti eru á serbneska þinginu og því þarf 126 sæti til að ná meirihluta.Aleksandar Vučić, fyrrverandi forseti Serbíu og leiðtogi Serbneska framfaraflokksins, viðurkenndi ósigur sinn í gærkvöld þegar ljóst var í hvað. Hann gagnrýndi hreyfinguna og sagði hana studda áfram af fjölmörgum Evrópulöndum og bandaríska djúpríkinu, sem einnig væri á móti Donald Trump Bandaríkjaforseta.Vučić rauf þing í september og boðaði til kosninga eftir mikil mótmæli sem hafa staðið yfir síðan 2024 eftir að 16 lé