Luiz Inacio Lula da Silva, sitjandi forseti og leiðtogi Verkamannaflokksins, er sigurvegari forsetakosninganna í Brasilíu, en síðari umferð kosninganna fór fram þar í gær.Lula fékk 51,79% atkvæða og mótframbjóðandi hans og öldungadeildarþingmaðurinn Flavio Bolsonaro fékk 48,21% atkvæða en búið er að telja öll atkvæði.Sumir kjörstaðir í Brasilíu voru opnir tveimur klukkustundum lengur en til stóð. Báðir frambjóðendur óskuðu eftir því að frestur til að kjósa yrði lengdur. Lula óskaði eftir því vegna truflana á samgöngum í sumum borgum Brasilíu og Bolsonaro vildi að þeir yrðu opnir lengur vegna slæms veðurs í mörgum borgum.Þegar Hæstiréttur úrskurðaði framlengingu á opnunartíma kjörstaða hafði sumum þeirra verið lokað. LULA ÞAKKLÁTUR KJÓSENDUM Í sigurræðu sinni þakkaði Lula kjósendum sem m