Luiz Inacio Lula da Silva, forseti Brasilíu.AP / Natacha PisarenkoLuiz Inacio Lula da Silva, sitjandi forseti og leiðtogi Verkamannaflokksins, er sigurvegari forsetakosninganna í Brasilíu, en síðari umferð kosninganna fór fram þar í gær. Lula fékk hann er með 51,75 % atkvæða.Mótframbjóðandi hans og öldungadeildarþingmaðurinn Flavio Bolsonaro hlaut 48,25% atkvæða.Kjörstaðir í Brasilíu voru opnir lengur en til stóð að ósk þeirra beggja.Lula verður 81 árs á þriðjudag. Þetta er í fjórða sinn sem hann er kjörinn forseti. Þetta er í fyrsta sinn sem frambjóðandi vinnur síðari umferð forsetakosninga í Brasilíu en Lula fékk 45 prósent atkvæða í fyrstu umferð kosninganna og Bolsonaro fékk 47 prósent.Stuðningsmenn Lula fagna ákaft og mynda L með fingrum honum til stuðnings.EPA / ANDRE COELHO