Umhverfisspjöll Google vekja reiði í Finnlandi

VESSANDI FORARSVAÐ ÞAR SEM ÁÐUR STÓÐU 250.000 TRÉ Skammt utan við smábæinn Muhos í norðanverðu Finnlandi, spottakorn frá Oulu, er um 330 hektara, vandlega afgirt svöðusár í annars ræktarlegum skóginum sem umlykur bæinn. Þar er búið að fella um 250.000 tré síðan í sumar til að rýma fyrir gagnaveri á vegum Google. Opinber eftirlitsstofnun hefur stöðvað framkvæmdirnar og hyggst kæra þær til lögreglu. Það þykir mörgum heldur seint í rassinn gripið, því tréin eru horfin, rætur þeirra upp rifnar og meira að segja búið að fletta sverðinum af skógarbotninum. Eftir liggur eitt allsherjar forarsvað, afmarkað af skurðum og alsett aurtjörnum, moldarhaugum, rótarhnyðjum og djúpum skorningum eftir stórvirkar vinnuvélarnar sem ruddu skóginn. Úr sárinu vessar stöðugt grábrún, þunnfljótandi - og súr - eðj
Umhverfisspjöll Google vekja reiði í Finnlandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar