Malbiksviðgerðir á Arnarnesvegi

Malbiksviðgerðir.RÚV / Björgvin KolbeinssonStefnt er að malbiksviðgerðum á Arnarnesvegi mánudaginn 26. október, milli klukkan 10:00 og 16:00. Búast má við einhverjum töfum á umferð á meðan á framkvæmdum stendur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Colas.Byrjað verður á framkvæmdum við hringtorg við Vetrarbraut og svo verður farið í framkvæmdir við Fífuhvammsveg.Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Malbiksviðgerðir á Arnarnesvegi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar