Suðurlandsvegi lokað við Rauðavatn annað kvöld

Já.is 360°Kafla af Suðurlandsvegi verður lokað á annað kvöld, frá klukkan átta til miðnættis. Þetta kemur fram á síðu Vegagerðarinnar.Stefnt er að malbiksviðgerðum á Suðurlandsvegi við Rauðavatn. Veginum verður lokað á milli tveggja hringtorga, frá hringtorginu þar sem Suðurlandsvegur og Breiðholtsbraut mætast að hringtorginu sem tengir Suðurlandsveg við Norðlingavað. Hjáleið verður um Norðlingabraut.
Suðurlandsvegi lokað við Rauðavatn annað kvöld

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar