Fossinn Gljúfrabúi nýtur vaxandi vinsælda meðal erlendra ferðamanna, en áður var fossinn vel falin perla sem fáir utan landsteinanna vissu af.Göngum upp í gilið, Gljúfrabúann til að sjá, segir í kvæðinu – og þeir eru fjölmargir sem gera það þessi dægrin.Lengi vel var Gljúfrabúi talinn vera leynd perla í íslenskri náttúru, enda falinn milli klettaveggja, annað en nágrannafossinn Seljalandsfoss, sem blasir við öllum sem aka þjóðveginn.En nú virðist leyndarhjúpurinn vera rofinn. Gljúfrabúi hefur sótt í sig veðrið undanfarið og vakið athygli, sér í lagi á samfélagsmiðlum.Ferðamenn sem heimsækja Seljalandsfoss gera sér margir ferð að Gljúfrabúa í leiðinni, sem er steinsnar frá.Þegar fréttastofu bar að garði biðu ferðamenn í röðum eftir að komast inn í gljúfrið og ná hinni fullkomnu mynd. Og þó