Fleiri alvarlegir öryggisgallar, eins og sá sem varað var við í PHP-forritunarmálinu í vikunni, eiga eftir að koma í ljós. Þetta segir Ingólfur Andri Ágústsson netöryggissérfræðingur hjá OK.Mikilvægt sé að kortleggja kerfi og setja upp varnir þar sem óprúttnir aðilar geti valdið meiriháttar tjóni með því að nýta sér slíka veikleika.Allt að 70 prósent vefsíðna á internetinu reiða sig á PHP-forritunarmálið. Netöryggissveitin CERT-IS varaði á miðvikudag við tveimur mjög alvarlegum veikleikum í forritunarmálinu, sem gætu gert óprúttnum aðilum kleift að ná stjórn á viðkvæmum kerfum.Gallinn uppgötvaðist fyrr á árinu en upplýsingar um hann láku í vikunni, og því var nauðsynlegt að bregðast við. Vefsíðum fyrirtækja og stofnana víðs vegar um heiminn var lokað meðan á uppfærslu stóð.„Maður hefur auð