Kjörstöðum í Brasilíu hefur verið lokað. Önnur umferð forsetakosninga fór fram í landinu í dag.Samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum eru frambjóðendurnir, Luiz Inacio Lula da Silva, sitjandi forseti og leiðtogi Verkamannaflokksins, og Flavio Bolsonaro, sem er öldungadeildarþingmaður og sonur fyrrverandi forseta landsins, Jair Bolsonaro, nær hnífjafnir.Jair Bolsonaro situr í stofufangelsi fyrir valdaránstilraun gegn sitjandi forseta.Stór hluti atkvæða sem greidd voru utan kjörfundar hefur þegar verið talinn. Í Japan, Sameinuðu arabísku furstadæmunum og í Hong Kong hefur Bolsonaro yfirhöndina en Lula sigraði í Kína, Ástralíu og á Nýja-Sjálandi.Lula fékk 45 prósent atkvæða í fyrstu umferð kosninganna og Bolsonaro fékk 47 prósent. VILDU LENGJA OPNUNARTÍMA Lula óskaði eftir því fyrr í dag að kjör