Garðfuglakönnun yfir vetrarmánuðina hafin

Árleg garðfuglakönnun félagsins Fuglaverndar hófst í dag og stendur til 24. apríl. Kannanir hófust 1994 og tilgangur þeirra er að afla upplýsinga um fuglategundir og fjölda fugla í görðum á Íslandi yfir vetrarmánuðina.Jafnframt er tilgangurinn að hvetja fólk til að líta á fuglalífið í sínu nánasta umhverfi. Ekki skiptir máli þó fólk hefji þátttöku aðeins seinna en aðrir. Allt fuglaáhugafólk sem hefur aðgang að garði er hvatt til að taka þátt.Vala Friðriksdóttir líffræðingur er félagi í fuglavernd og segir fólk einfaldlega þurfa að velja sér ákveðið svæði og svo telja. Fólk þurfi að kynna sér fuglategundirnar til að skrásetja það sem það sér.„Í rauninni getur hver sem er tekið þátt. Þú þarft bara að hafa stað þar sem eru fuglar.“Þægilegast er að vera með fugla á fóðrum þar sem maður dvelst
Garðfuglakönnun yfir vetrarmánuðina hafin

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar