Fagur söngur fljótandi dívu dró marga að Reykjavíkurtjörn

Hátíðin var sett á kaffihúsi í miðbænum í dag. Því næst var gengið á milli staða og viðstaddir fengu að njóta óperu á hverjum stað. Óperudagar standa yfir næstu vikuna, þar til 1. nóvember. Fjöldi viðburða er á dagskrá, sem nálgast má á vef hátíðarinnar.Guja Sandholt, sem hefur verið listrænn stjórnandi Óperudaga frá upphafi, segir ákveðið samfélag hafa myndast í kringum hátíðina. Klassískir söngvarar standi saman og það hafi skilað sér í nýrri þjóðaróperu.Óperugöngunni í dag lauk við Tjörnina þar sem hollenska verkið Fljótandi dívan heillaði viðstadda. Jóna G. Kolbrúnardóttir er íslenska dívan.
Fagur söngur fljótandi dívu dró marga að Reykjavíkurtjörn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar