Hafsteinn Dan Kristjánsson lagaprófessor telur ekki mikinn vafa leika á því að hægt sé að lögfesta svokallaða bókun 35 án þess að brjóta gegn stjórnarskrá. Hann segir þó líklegt að látið verði reyna á málið mjög fljótlega fyrir dómstólum verði frumvarpið samþykkt.