Þingmaður Samfylkingar í Norðausturkjördæmi segir mikinn létti að innviðaráðherra ætli að bæta við fjármagni í Loftbrú. Sú upphæð sem hann hafi kynnt fyrir helgi sé sennilega of lág.„Það er mikill léttir að innviðaráðherra ætli að bæta 200 milljónum í Loftbrú á næsta ári. Þegar breytingarnar voru kynntar fyrir helgi voru það ekki góðar fréttir,“ segir Eydís Ásbjörnsdóttir, þingmaður Samfylkingar fyrir Norðausturkjördæmi og fjórði varaforseti Alþingis.„Sú upphæð sem var kynnt var sennilega of lág. Það er mikilvægt að upphæðin endurspegli verðþróun, sem hefur ekki verið tilfellið hingað til,“ segir Eydís.Hún segir að mikil þörf hafi verið á að skoða fyrirkomulagið sem Loftbrú byggir á.„Og ég er sátt við þessa ákvörðun og mér þykir það góðar fréttir að nú verði föst krónutala sem gildir fyrir