Lengi hefur verið deilt um hvort Egyptar hafi stundað mannfórnir við útfarir fyrstu konunga sinna.Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til þess að þjónar og embættismenn hafi í sumum tilvikum verið látnir fylgja konungunum inn í framhaldslífið.Roselyn Campbell, fornleifafræðingur við Purdue-háskóla í Bandaríkjunum, skoðaði 46 höfuðkúpur í hliðargrafreit nærri konunglegum grafreit skammt frá hinni fornu borg Abydos í Egyptalandi.Í hliðargrafreitnum virðast þeir hafa verið jarðsettir sem tengdust konungshirðinni, meðal annars embættismenn, handverksfólk og þjónar konunga. ÁVERKAR Á HÖFUÐKÚPUM 18 af 46 höfuðkúpum báru merki um áverka sem gætu hafa verið banvænir, að mati Campbell. Þar á meðal voru beinbrot sem samrýmast þungum höggum og í einu tilviki greindist alvarlegur höggáverki við aug