Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi lögreglumaður, segir viðbúið að skiptar skoðanir séu á fyrirætlunum. Gagnrýnisraddirnar séu þó ekki allar á sama máli enda þyki sumum að betur hefði farið á því að sameina öll embættin í eitt á meðan öðrum hugnist það ekki vegna áhyggna af áhrifum á störf lögreglu á landsbyggðinni.„Þannig að það var bara að finna bestu leiðina og þessi leið sem núna hefur verið talað fyrir liggur mitt á milli þess að vera með eina lögreglu á landinu og að vera með þessi níu umdæmi sem núna eru.“Sjálfur hafi hann ekki áhyggjur af því að breytingin dragi úr löggæslu á landsbyggðinni. Þvert á móti telji hann að með því að stækka embættin verði þeim kleift að takast betur á við stærri verkefni. Lögregluþjónum verði ekki fækkað þótt lögreglustjórum fækki.„Ég