Hvað á að gera við graskersgumsið?

Senn líður að hrekkjavöku sem vinnur sér sífellt sterkari sess sem tyllidagur hér á landi. Grasker og annar varningur tengdur hátíðinni er áberandi í verslunum og sala á þessum árstíma hefur margfaldast.Margir kjósa að skera út í graskerin og nota sem skraut í anda hrekkjavökunnar. Við útskurðinn fer mikill tími í að tæma graskerið áður en hægt er að skera út andlit og ýmsar kynjaverur.En hvað á að gera við innvolsið?Margir henda graskersgumsinu en tilvalið er að nýta það í matargerð. Þó að stóru hrekkjavökugraskerin séu ekki alveg jafn sæt og góð og þau sem ræktuð eru beinlínis til matar, þá eru þau vel æt. Marta María Arnarsdóttir, skólameistari Hússtjórnarskólans, segir að hægt sé að nota innvolsið á ýmsa vegu.„Auðvitað er hægt að rista fræin eða búa til graskerssúpu.“Grasker eru ávexti
Hvað á að gera við graskersgumsið?

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar