Gerð ytri úttekt á slysi sem varð í tengivirki í Borgarfirði

Landsnet lætur gera ytri úttekt á slysi sem varð þann 30. september við tengivirki í Borgarfirði þegar ung kona varð fyrir rafstraumi. Slysið er til rannsóknar hjá lögreglu, HMS og Vinnueftirlitinu.Í svari Landsnets við fyrirspurn fréttastofu segir að fyrirtækið láti gera ytri úttekt á slysinu til að greina atburðarrás og orsakir þess og láta leggja til úrbætur og eftirfylgni. Sú vinna standi yfir og geti tekið nokkrar vikur.Konan var flutt beint til Noregs í kjölfar slyssins þar sem hún gekkst undir aðgerð. Í svari til fréttastofu segir að Landsnet veiti, af persónuverndarástæðum, ekki upplýsingar um heilsufar, líðan eða læknismeðferð starfsmannsins.
Gerð ytri úttekt á slysi sem varð í tengivirki í Borgarfirði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar