Öryggis- og varnarmál verða í brennidepli á Norðurlandaráðsþingi í vikunni. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem sækir þingið segir áherslu verða lagða á að ríkin séu samstíga þegar komi að því að takast á við krísur sem upp kunni að koma.78. þing ráðsins fer fram í Helsinki í vikunni þar sem Finnland fer með formennsku í ráðinu í ár. Fulltrúar Íslandsdeildar ráðsins sækja þingið. Þar á meðal er Bryndís Haraldsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins. EKKI NÓGU SAMSTÍGA Í COVID Hún segir öryggis- og varnarmál á Norðurlöndunum óneitanlega verða í brennidepli og hvernig best sé að stilla saman strengi í krísu. Það samstarf hafi ekki gengið nógu vel á tímum Covid samkvæmt nýrri skýrslu.„Við höfum lagt mikla áherslu á það að vinna betur saman og samhæfa okkur þannig að þegar til næstu krísu kemu