Laxveiði jókst um 35% milli ára

12% meiri lax veiddist á stöng í sumar en á meðalári. Heildarfjöldi stangveiddra laxa var um 46.300 fiskar. Það er 35% meiri veiði en í fyrra.Þetta kemur fram í bráðabirgðatölum Hafrannsóknarstofnunar. Veiðin var 12% yfir meðalveiði áranna 1974-2025 og voru ákveðin landssvæði sem báru af. Jóhann Helgi Stefánsson framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga segir að veiðisumarið hafi í heildina verið mjög gott.„Sérstaklega á Vesturlandi en það stóð sig gríðarlega vel en var svona aðeins blettóttara á Norðurlandi. Það voru sumar ár sem stóðu sig virkilega vel, eins og Laxá í Aðaldal, á meðan aðrar ár voru heldur lakari og það skýrist örugglega á mörgum þáttum.“ VEÐURFAR STÓR BREYTA Góð laxveiði getur skýrst af ýmsu og er veðurfar stór breyta. Þá sé vætusamt veður einstaklega hagstætt fyrir
Laxveiði jókst um 35% milli ára

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar