Skilur skiptar skoðanir á sameiningu lögregluembætta

Dómsmálaráðherra segir skiljanlegt að skoðanir séu skiptar á sameiningum lögregluembætta. Alls hafa tuttugu og ein umsögn borist í samráðsgátt um frumvarp hennar um fækkun lögregluembætta úr níu í þrjú, umsagnarfrestur rennur út í dag.Yfirlögregluþjónar og starfsmenn lögreglu á Norðurlandi vestra og Vestfjörðum lýstu í gær áhyggjum af áformunum.Í færslu á samfélagmiðlum í dag segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra að hún hafi verið ánægð með jákvæð viðbrögð lögreglumannanna og lögreglustjóra en að hún geri sér grein fyrir því að skoðanir á leiðum að markmiðum verði alltaf skiptar. Frumvarpið sé stór kerfisbreyting, þörf og tímabær.„Ætlunin er að stækka embættin. Og ég mun núna á haustþingi leggja fram frumvarp um að starfandi verði þrjú stór lögregluembætti í stað þeirra
Skilur skiptar skoðanir á sameiningu lögregluembætta

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar