Þingmaður Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi telur að innviðaráðherra þurfi að endurskoða boðaðar breytingar á niðurgreiðslu vegna Loftbrúar. Sjö þúsund krónur nægi ekki til að mæta háum flugfargjöldum. UPPHÆÐ NIÐURGREIÐSLU OF LÁG Innviðaráðuneytið tilkynnti á föstudag breytingar á Loftbrú. Íbúar á landsbyggðinni hafa getað nýtt Loftbrú við kaup á flugi innanlands frá 2020. Hver og einn hefur átt rétt á sex flugleggjum á ári sem ríkið niðurgreiðir um 40%.Frá áramótum breytist fyrirkomulagið. Í stað 40% afsláttar verða 7000 krónur niðurgreiddar af hverjum fluglegg.Breytingarnar hafa mætt mikilli andstöðu frá sveitarstjórnum víða um land sem gagnrýna ríkisstjórnina fyrir samráðsleysi. Þá sé upphæð niðurgreiðslu of lág.María Rut Kristinsdóttir, þingmaður Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi o