Dr. Erik Kwakkel, prófessor við upplýsingafræðideild Háskólans í Bresku-Kólumbíu, vestasta fylki Kanada, heimsótti land og þjóð í vikunni og hélt fyrirlestur í Eddu um minnismiða og innkaupalista. Ekki þó sína eigin heldur þá sem almenningur á löngu horfnum miðöldum páraði hjá sér. Og þeir hafa varðveist.