„Ákveðið var að skipuleggja pakkaferð með flugi og gistingu í samstarfi við Sævar Helga Bragason og Gísla Má Árnason hjá Iceland at Night sem Icelandair Vita [ferðaskrifstofa flugfélagsins] býður upp á,“ segir Guðni Sigurðsson upplýsingafulltrúi Icelandair í samtali við Morgunblaðið, en tilefni farar þessarar til Málaga á Suður-Spáni í byrjaðan ágúst 2027 er ekki lítið.