Um þetta leyti á árinu 1995 var vinna við innleiðingu á einu neyðarsímanúmeri fyrir allt landið langt á veg komið. Fram að því hringdi fólk í símanúmer lögreglu eða slökkviliðs í sinni heimabyggð og ekki hægt að styðjast við netið til að fletta upp símanúmeri ef það var á ferðalagi fjarri heimabyggð. Þá þurfti að fletta upp í símaskrá eða vera svo forsjár að hafa skráð hjá sér neyðarsímanúmer til öryggis áður en lagt var af stað í ferðalagið, enda númerin á annað hundrað.Í þættinum Dagsljósi var fjallað um innleiðinguna í nóvember 1995, þegar 39 dagar voru í að nýja númerið yrði tekið í gagnið. Landssamband lögreglumanna hafði lýst áhyggjum af því að nýja númerið myndi draga úr öryggi. Í Dagsljósi var rætt við Guðmund Vigni Óskarsson, þáverandi formann Landssambands slökkviliðsmanna, sem t