Þyngdarstjórnunarlyf geta aukið líkur á að neglur losni frá naglabeði samkvæmt nýrri rannsókn. Nær 40% þátttakenda sem notuðu GLP-1 þyngdarstjórnunarlyf fundu fyrir því að neglur þeirra losnuðu frá naglabeði samanborið við 9% fólks sem tók ekki slík lyf.Notkun lyfja líkt og Ozempic og Wegovy, sem eru ætluð til meðferðar við sykursýki og til þyngdartaps, hefur stóraukist síðustu ár.Niðurstöður rannsóknarinnar voru kynntar á ráðstefnu EAVD (European Academy of Dermatology and Venereology) um húð- og kynsjúkdómafræði í Sviss. Þátttakendur voru frá Frakklandi, Bandaríkjunum, Brasilíu og Mexíkó.Þær sýndu að neglur losnuðu frá naglabeði hjá 39% af 575 manns sem notuðu GLP-1 þyngdarstjórnunarlyf. Sá hópur var borinn saman við 1.329 sem tóku ekki slík lyf.66% fólks sem notaði lyfin greindu frá ein