Búast má við norðan kalda eða strekkingi í dag en austan Öræfa má reikna meðallhvössum eða hvössum vindi fram að hádegi samkvæmt Veðurstofu Íslands.Úrkoma mjakast yfir landið úr austri en sunnan- og vestanlands verður úrkomulítið þangað til í kvöld. Þó gæti hann hangið þurr syðst á landinu.Á láglendi verður rigning eða slydda, en snjókoma til fjalla. Hiti verður á bilinu 0 til 7 stig. Þá lægir víðast hvar á morgun. Úrkomusvæðið verður yfir norðanverðu landinu, en smám saman dregur úr úrkomu. Syðra verður að mestu þurrt og hiti svipaður.