Orðin fjölþáttaógnir, fjölþáttaárásir og fjölþáttastríð hafa heyrst töluvert í fréttum síðustu mánuði og ekki að ástæðulausu því samhliða innrásarstríði Rússlands í Úkraínu hafa þessar ógnir og árásir aukist í Evrópu. Að sumra mati segja þessi orð þó ekki nákvæmlega hvað felst í fyrirbærinu. Á ensku eru fjölþáttaógnir hybrid threats. Framkvæmdastjóri NATO segir orðið allt of krúttlegt miðað við hvað það eigi að ná yfir og utanríkisráðherra Svíþjóðar segir það helst minna á umhverfisvænan bíl. Sumum dettur ef til vill fyrst í hug netárásir og njósnir við að heyra þessi orð, en fjölþáttastríðið, eða skuggastríðið, er þó umfangsmeira en svo.Pakkasendingar með tímastýrðum sprengjum, drónar með sprengiefni, íkveikjur, eitranir, skemmdir á sæstrengjum, dularfull innbrot, netárásir, dreifing fals