Fyrrum forseti Bandaríkjanna Barack Obama fór hörðum orðum um núverandi forseta Donald Trump á kosningafundum frambjóðenda Demókrataflokksins í Ohio og Michigan í gær. Obama sagði ríkisstjórn Trumps bera ábyrgð á hækkun framfærslukostnaðar, sem er eitt helsta áhyggjuefni kjósenda, auk hækkandi eldsneytisverðs.Obama sagði forsetann hafa tekið röð rangra ákvarðana og hann hefði hafið ónauðsynlegt stríð sem enginn bað um. „Eftir tvö ár af ringulreið, grimmd, spillingu og vanhæfni - sem á sér enga hliðstæðu í nútímanum - fáið þið fækifæri til að segja: ,,Nú er nóg komið,“ sagði Obama og bætti við „við ætlum að kjósa breytingar, hér í Ohio.“Obama, sem nýtur enn töluverðra vinsælda meðal demókrata, kom fram á kosningafundunum til að lýsa yfir stuðningi sínum við frambjóðendur flokksins í komandi