Meta frestar breytingu á skilmálum til 20. nóvember

Meta, fyrirtækið sem rekur Facebook og Instagram auk annarra samfélagsmiðla, tilkynnti á föstudag að fyrirhuguðum breytingum á notendaskilmálum fyrirtækjareikninga verði seinkað til 20. nóvember.Bandaríski sérmiðillinn NiemanLab greinir frá.Með nýjum notendaskilmálum Meta áskilur fyrirtækið sér rétt til þess að safna og vista efni af vefjum sem tengdir eru fyrirtækjareikningum. Eins og þeir eru orðaðir getur Meta fært rök fyrir því að fyrirtækið geti notað efni af vefsíðum fyrirtækja, þar með talið fjölmiðla, til þess að þjálfa gervigreindartól.Notendum eru ekki gefnar neinar leiðir til þess að mótmæla eða hafna skilmálunum heldur þurfa þeir einfaldlega að hætta á miðlunum.Þessar breytingar áttu að taka gildi 30. október en voru harðlega gagnrýndar af fjölmiðlum, stjórnmálafólki og blaðama
Meta frestar breytingu á skilmálum til 20. nóvember

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·MCP·Persónuvernd·Skilmálar