Barack Obama, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, gagnrýndi eftirmann sinn, Donald Trump, harðlega á kosningafundi í Ohio í dag. Fundurinn var haldinn til stuðnings frambjóðendum demókrata fyrir þingkosningarnar 3. nóvember. „Eftir tveggja ára glundroða, grimmd, spillingu og vanhæfni, sem á sér enga hliðstæðu í seinni tíð, gefst ykkur tækifæri til að segja: ‚Nú er nóg komið,‘“ sagði Obama í Cleveland. „Hér í...