„Marta var sálufélagi minn og nánasti vinur. Ég lærði margt af henni, ekki síst varðandi æðruleysið. Hún kenndi mér til dæmis að vera meðvitaður um það að við höfum bara takmarkaðan tíma hérna á jörðinni,“ segir Ingó Geirdal, gítarleikari Dimmu, en hann missti unnustu sína, Mörtu Sigurðardóttur, nú síðsumars.