Skólatorfan á Reyðarfirði, knattspyrnuhöll, íþróttahús og skólamannvirki verða kynt með brennslu á viðarperlum. Framkvæmdir eru langt komnar við nýja kyndistöð Tandraorku.Viðarperlurnar, sem eru framleiddar á Eskifirði úr grisjunarviði úr austfirskum skógum, verða brenndar og hitinn af brunanum notaður til að hita vatn sem fer inn á fjarvarmaveitu sem hefur fram til þessa verið knúin skerðanlegri orku. Fjarðabyggð og Tandraorka hafa gert samning um rekstur kyndistöðvarinnar. Stærsta breytingin verður kynding knattspyrnuhússins, þar sem hefur verið býsna kalt síðustu áratugi. Framkvæmdir við nýja kyndistöð, þar sem viðarperlur verða brenndar til að hita skóla og íþróttamannvirki á Reyðarfirði, eru langt komnar. Perlurnar eru framleiddar úr grisjunarviði úr austfirskum skógum. „Hún h