Efling íhugar úrsögn úr ASÍ

Stjórn Eflingar hefur samþykkt að skoða hvort félagið eigi að segja sig úr Alþýðusambandi Íslands. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir að innan ASÍ séu hagsmunir millistéttarinnar iðulega settir ofar hagsmunum láglaunafólks.Efling stéttarfélag hefur ákveðið að hefja skoðun á því hvaða stöðu það hefur innan ASÍ og hvað úrsögn úr sambandinu þýði. Kallað hefur verið eftir úttekt frá lögmannsstofunni Magna um stöðu Eflingar innan sambandsins. Sólveig Anna segir það reglulega hafa komið upp í umræðuna síðustu ár, meðal annars frá stjórnar- og félagsmönnum Eflingar, að félagið ætti að segja sig úr ASÍ. HAGSMUNUM LÁGLAUNAFÓLKS MÖGULEGA BETUR BORGIÐ UTAN ASÍ „Mögulega er hagsmunum verka- og láglaunafólks hér á höfuðborgarsvæðinu, þessum risastóra hópi, Efling er með 28 þúsund féla
Efling íhugar úrsögn úr ASÍ

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·MCP·Persónuvernd·Skilmálar