Gagnrýnisraddir á breytingu á Loftbrú skiljanlegar

María Rut Kristinsdóttir, formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis og þingmaður Viðreisnar, segir gagnrýnisraddir um breytingu á niðurgreiðslu Loftbrúar skiljanlegar. Hún sjálf hafi efasemdir um upphæð niðurgreiðslunnar.Íbúar á landsbyggðinni hafa getað nýtt Loftbrú við kaup á innanlandsflugi frá 2020. Hver og einn á rétt á sex flugleggjum á ári sem ríkið niðurgreiðir um fjörutíu prósent. Frá áramótum breytist fyrirkomulagið. Í stað fjörutíu prósenta afsláttar verða sjö þúsund krónur af hverjum fluglegg niðurgreiddar. Niðurgreiðslan á ársgrundvelli á hvern íbúa getur því mest orðið fjörutíu og tvö þúsund krónur.„Við erum auðvitað bara mjög reið hér fyrir austan,“ segir Ragnar Sigurðsson, formaður Samtaka sveitarfélaga á Austurlandi. „Maður finnur það á almenningi, mikil reiði. Það e
Gagnrýnisraddir á breytingu á Loftbrú skiljanlegar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·MCP·Persónuvernd·Skilmálar