Formaður félags bókasafnsfræðinga segir samfélagslegan ávinning bókasafna meiri en svo að hægt sé að mæla hann í útlánstölum og gestafjölda. Hún sjái ekki hvernig eigi að hagræða og bæta þjónustu á bókasöfnum á sama tíma.Meirihluti menningarráðs Reykjavíkurborgar leggur til að framkvæmd verði heildstæð greining á rekstri, starfsemi og framtíðarskipulagi Borgarbókasafns Reykjavíkur.Fram kemur í tillögunni að gerður verði tölulegur samanburður á rekstri og nýtingu á húsnæði. Kostnaður á hvern gest og hvert útlán verði skoðaður sem og möguleg fækkun útibúa safnsins. UMMÆLI BORGARSTJÓRA DÆMI SIG SJÁLF Margir eru ósáttir við tillöguna. Fulltrúar meirihlutans hafa ítrekað að ekki standi til að loka bókasöfnum borgarinnar. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri sagði svo virðast sem læsisvanda gæti