Meira en 800 þúsund mótmæltu í Frakklandi í dag að sögn almenna verkalýðssambandsins CGT. Innviðaráðherra Frakklands segir fjölda mótmælenda nær 400 þúsund.250 þúsund mótmæltu í París í dag að sögn CGT. Þar hefur verið neglt fyrir glugga verslana og söfnum og neðanjarðarlestarstöðvum lokað. Mótmælin fóru að mestu friðsamlega fram en til átaka kom síðdegis þegar 500 óeirðarseggir réðust á lögreglumenn. Lögregla beitti táragasi og sprautaði vatni á mótmælendur.Miklar óeirðir hafa sprottið upp úr mótmælunum í Frakklandi sem náðu hámarki síðasta laugardag. Þá voru 2.700 manns handteknir.Yfirvöld í Frakklandi hertu öryggisráðstafanir og settu mótmælendum skorður víða, svo sem um hvar væri leyfilegt að mótmæla. 70 þúsund lögreglumenn voru sendir um landið allt vegna mótmælanna. KATANA-SVERÐ OG