Segir skorta rök fyrir því að lögregluembættin verði þrjú

Yfirlögregluþjónar og starfsmenn lögreglu á Norðurlandi vestra og Vestfjörðum lýsa áhyggjum af fyrirhugaðri fækkun lögregluembætta úr níu í þrjú. Alls hafa 14 umsagnir borist í samráðsgátt um frumvarp dómsmálaráðherra, umsagnarfrestur rennur út á morgun.Dómsmálaráðherra kynnti í september áform um að fækka lögregluembættum úr níu í þrjú. Starfsmenn lögreglustjórans á Norðurlandi vestra leggjast gegn áformunum í umsögn og telja greiningar skorta til stuðnings ákvörðuninni. Frumvarpsdrögin taki ekki nægilegt mið af eðli löggæslu í dreifbýli.Lögreglufélag Vestfjarða lýsir einnig áhyggjum af áformunum í ályktun. Félagið hefur áhyggjur af því að með sameiningu færist stjórnun og ákvarðanataka fjær starfssvæðinu og geti jafnframt orðið grundvöllur hagræðingaraðgerða síðar. UNNIÐ OF HRATT OG ÁN
Segir skorta rök fyrir því að lögregluembættin verði þrjú

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·MCP·Persónuvernd·Skilmálar