Þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í fjárlaganefnd segir landsbyggðina brjálaða vegna áforma ríkisstjórnarinnar um breytingar á afsláttarkjörum íbúa á landsbyggðinni af flugferðum. Samgönguráðherra hafi lofað samráði um málið í óundirbúnum fyrirspurnartíma í apríl og því sé samráðsleysi í málinu sérstaklega alvarlegt.