Starfsmenn Lögreglustjórans á Norðurlandi vestra leggjast gegn hugmyndum um sameiningu og skipulag lögregluembætta. Að mati starfsmanna hefur ekki verið sýnt fram á nauðsyn þess að fækka lögregluembættum eða að fyrirhuguð sameining muni bæta löggæslu á Norðurlandi vestra.