Nýja einkarekna sjúkrahúsið Litli spítalinn er fjármagnað af athafnakonunni Katrínu Pétursdóttur, sem nýlega seldi fyrirtækið sitt Lýsi hf, sem hún hefur verið kennd við, til útgerðarfélagsins Brims. Spítalinn verður rekinn í fyrrverandi höfuðstöðvum Landsvirkjunar við Háaleitisbraut 68, sem útgerðarmaðurinn Kristján Vilhelmsson, einn stofnenda Samherja, keypti í fyrra. Skráður eigandi Litla spítalans er félagið Helga Medical ehf. Guðrún Ása Björnsdóttir er...