Hyggjast mótmæla breytingum á Loftbrú: „Við ætlum ekki að sætta okkur við þetta“

Innviðaráðherra, tilkynnti í gær breytingar á fyrirkomulagi Loftbrúar sem taka gildi frá og með áramótum. Formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi segir breytingarnar kaldar kveðjur til íbúa á landsbyggðinni. „BLAUT TUSKA FRÁ RÍKISSTJÓRNINNI“ Íbúar á landsbyggðinni hafa getað nýtt Loftbrú við kaup á flugi innanlands frá 2020. Hver og einn hefur átt rétt á sex flugleggjum á ári sem ríkið niðurgreiðir um 40%. Frá áramótum breytist fyrirkomulagið.Í stað 40% afsláttar verða sjö þúsund krónur niðurgreiddar af hverjum fluglegg.„Ég segi það bara að þetta er blaut tuska frá ríkisstjórninni og með öllu óásættanlegt,“ segir Ragnar Sigurðsson, formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.„Við stólum mjög mikið á Loftbrúna og við höfum frekar verið að vonast til þess að fá aukningu í hana veg
Hyggjast mótmæla breytingum á Loftbrú: „Við ætlum ekki að sætta okkur við þetta“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·MCP·Persónuvernd·Skilmálar