Starfsmenn Lögreglustjórans á Norðurlandi vestra hafa skilað inn umsögn um frumvarp til laga um breytingar á lögreglulögum. Þar leggjast þeir gegn þeim hugmyndum um sameiningu og skipulag lögregluembætta sem birtast í frumvarpsdrögum.Mörg sveitarfélög hafa þegar lagst gegn sameiningunni.Að mati starfsmanna lögreglunnar á Norðurlandi vestra hefur ekki verið sýnt fram á nauðsyn þess að fækka lögregluembættum úr níu í þrjú eða að fyrirhuguð sameining muni bæta löggæslu á Norðurlandi vestra.Í umsögninni segir að öryggi íbúa Norðurlands vestra byggist á því að lögregla sé til staðar, þekki samfélagið og geti brugðist við þörfum þess. Það er sá grundvöllur sem starfsmenn vilja standa vörð um og þróa áfram.Frumvarpsdrögin taki ekki nægilegt mið af eðli löggæslu í dreifbýli, mikilvægi staðbundinna