Eftirspurn eftir insúlínsprautum og nálum heldur áfram áfram að aukast. Hægt er að nota sprauturnar til að sprauta peptíðum í líkamann, en borið hefur á ólöglegri notkun þeirra hér á landi.Í umfjöllun fréttastofu í vor kom fram að starfsfólk Lyfju hefði orðið vart við aukna eftirspurn eftir sprautum og jafnvel að fólk spyrði hvernig best væri að bera sig að við að sprauta peptíðum. Hvað eru peptíð? * Peptíð eru einfaldar amínósýrur, sem eru nokkurs konar uppistaða próteina og virka líka sem boðefni. * Líkaminn framleiðir peptíð og þau er líka að finna í ýmsum matvörum eins og til dæmis fiski og mjólk. Mörg peptíð sem fást úr fæðu geta haft jákvæð áhrif á heilsuna. * Sum þeirra peptíða sem seld eru á samfélagsmiðlum eru sögð vera sömu gerðar og þau sem líkaminn framleiðir sjálfur. * Mar