Réttarfar var með öðrum hætti á Íslandi á fyrri öldum. Á 18. og 19. öld var fólk sent til afplánunar í fangelsi í Kaupmannahöfn enda ekkert fangelsi á Íslandi fyrr en eftir 1760 þegar tukthús var reist við Arnarhól. Erfitt er að tala um fangelsi þegar fjallað er um þrælakisturnar í höfuðborg Íslands – Kaupmannahöfn – á þessum tíma. Fólki sem gerðist brotlegt við lög fjölgaði mjög á Íslandi þegar leið á 18. öldina. Helsta ástæðan voru mikil harðindi sem urðu til þess að fólk lagðist á flakk og stal sér til matar.Í þáttaröðinni Betrun er fjallað um fangelsismál Íslendinga í fortíð og nútíð. Sigríður Hjördís Jörundsdóttir sagnfræðingur hefur rannsakað fangaskrár danskra fangelsa á þessum tíma og fundið nöfn 166 Íslendinga í þeim á tímabilinu 1736–1830. Þeirra á meðal er nafn Ólafs Þorsteinsso