Sagan af Dean Perryman, hreyfingunni hans og vininum Rob rataði til Heimskviða gegnum einhvern samfélagsmiðilinn. Sagan var uppbyggileg og falleg þó að kveikjan sé það ekki. Perryman var meira en til í viðtal um málið.„Empty Chairs verkefnið, eða Auðir stólar, er í raun mjög einföld hugmynd,“ segir Perryman um verkefnið sem hann kom á laggirnar.„Einhver hefur frumkvæði að því að skipuleggja hitting á opinberum stað. Sá sem skipuleggur mætir í einhverju appelsínugulu og hugmyndin er að allir séu velkomnir að borðinu. Ef þig vantar einhvern stað til að mæta á, langar að hitta fólk og vera innan um aðra.“Skipuleggjandinn bókar borð á bar eða kaffihúsi, lætur vita á samfélagsmiðlum og öll eru velkomin. Þú mátt stoppa í fimm mínútur eða allt til lokunar. Þú mátt taka djúptrúnó eða bara sitja og