Á 47. þingi Alþýðusambands Íslands í síðustu viku urðu skýr skil. Ég gaf kost á mér í embætti fyrsta varaforseta en laut í lægra haldi fyrir formanni VR, sem hafði mánuðum saman talað opinberlega um hversu lítils virði henni þætti sætið. Ég bauð mig ekki fram til annarra starfa og á því ekki sæti í miðstjórn.