Pezeshkian hittir Pútín í Moskvu

Forseti Íran, Massoud Pezeshkian, og Vladimír Pútín Rússlandsforseti hittust á fundi í Turkmenbashi, Túrkmenistan, 8. október sl.EPA / SERGEY BOBYLEV / SPUTNIK / KREMLIN POOLForseti Íran, Massoud Pezeshkian, fer til Moskvu, höfuðborgar Rússlands, í næstu viku til fundar við Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Íranskur ríkismiðill greinir frá.Forsetarnir ætla að ræða efnahagslega samvinnu og stöðu heimsmálanna.Rússneski utanríkisráðherrann Sergei Lavrov var í heimsókn í Íran í vikunni og hitti þar utanríkisráðherra Írans, Abbas Araghchi. Araghchi sagði eftir fund þeirra að samvinna Rússlands og Írans hefði aldrei verið nánari.Þjóðirnar, sem lúta mestu viðskiptaþvingunum allra þjóða heims, hafa orðið enn nánari eftir að Rússar hófu innrásina í Úkraínu í febrúar 2022.
Pezeshkian hittir Pútín í Moskvu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·MCP·Persónuvernd·Skilmálar