Í dag er búist við bjartviðri víða á vesturhluta landsins en skúrum og slydduéljum austanlands og með norðurströnd landsins. Útlit er fyrir að það hvessi suðaustan- og austanlands í kvöld. Hiti er á bilinu eitt til sex stig en frystir víða inn til landsins.