56.000 heimili rafmagnslaus eftir fellibylinn Champi

Yfir 56 þúsund heimili eru rafmagnslaus í Taívan eftir að fellibylurinn Champi fór þar yfir í gær. Einn lést og yfir fimm hundruð hafa slasast af völdum óveðursins síðan yfirvöld gáfu út veðurviðvaranir á fimmtudag. Yfir 5.000 var gert að yfirgefa heimili sín.Dregið hefur úr áhrifum af fellibylnum í Taívan en þó er enn hvasst þar og mikil úrkoma. Úrkoma mældist tæplega 24 sentímetrar í Miaoli á vesturhluta Taívan í dag.Champi er nú á leið norður áleiðis að Kína og Japan. Yfirvöld í Kína hafa gefið út viðvaranir vegna fellibylsins. Nokkrum lestarferðum hefur verið aflýst og tugum þúsunda íbúa hefur verið gert að yfirgefa heimili sín í Sjanghæ.Þá hefur tugum flugferða verið aflýst á japönsku eyjunni Okinawa. Japönsk yfirvöld segja að tveir hafi slasast af völdum Champi.
56.000 heimili rafmagnslaus eftir fellibylinn Champi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·MCP·Persónuvernd·Skilmálar